Tillaga að starfsleyfi fyrir móttökustöð raftækjaúrgangs
Heilbrigðiseftirlitið hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir móttökustöð raftækjaúrgangs fyrir Efnarás ehf, að Álhellu 1 í Hafnarfirði.
Leyfið tekur til reksturs móttökustöðvar fyrir raftækjaúrgang að Álhellu 1, þar sem fram fer móttaka og flokkun raftækja sbr. ákvæði 5. gr. reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, sbr. lið 8.6 í viðauka X við sömu reglugerð. Leyfið er gefið út með skilyrðum um að ákvæðum laga og reglugerða um hollusthætti og mengunarvarnir hverju sinni, sé fylgt. Umsækjandi starfsleyfis er Efnarás ehf., kt. 530315-0290.