Frétt

Innköllun á Ultimate Metyl Blue litarefni þar sem að það er ekki öryggt til neyslu.

Mamma veit best hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað Ultimate Metyl Blue litarefni þar sem að þessi litarefni eru ekki matvæli og eru ekki talin örygg til neyslu.

Upplýsingar um vöruna    

Vörumerki: Earth Harmony

Vöruheiti: Ultimate Methyl Blue

Framleiðandi: Earth harmony

Innflytjandi: Mamma veit best ehf

Framleiðsluland: Bandaríkin

Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: LOT 22E24B/ 05-2026

Geymsluskilyrði: Geymist á þurrum stað.

Dreifing: Mamma veit best ehf

Fréttatilkynning frá fyrirtækinu