Frétt

Innköllun á Kjötsúpu 410g dós vegna vanmerktra ofnæmisvalda.

Ora ehf hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað Ora Kjötsúpu 1/2 dós þar sem að hún inniheldur ofnæmisvalda sem eru ekki merktir á dósinni. Varan inniheldur soja og mjólk.

Upplýsingar um vöruna:

Vörumerki: Ora

Strikamerki: 5 690519 222304

Vöruheiti: Kjötsúpa ½ dós niðursoðin

Framleiðandi: Ora (Myllan-Ora ehf)

Lotunúmer: L101257 / best fyrir dagsetning: 19.09.2028

Dreifing: Fjarðarkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Vöruhús Samkaupa

Fréttaskýring fyrirtækisins