Frétt

Innköllun á Kite hveiti það inniheldur óleyfilegt aukefni Benzoyl peroxide

Fiska - Lagsmaður hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað Kite hveiti frá United Mill með best fyrir dagsetningu 10.12.2025 vegna þess að það inniheldur óleyfilegt aukefni Benzoyl peroxide.

Upplýsingar um vöruna:

Vörumerki: United hveiti

Vöruheiti: Kite hveiti 1 kg

Framleiðandi: United Flour MillPublic Co. Ltd

Innflytjandi: Fiska - Lagsmaður

Framleiðsluland: Thailand

Best fyrir dagsetning: 10.12.2025

Geymsluskilyrði: Þurrvara

Dreifing: Fiska.is

Fréttatilkynning fyrirtækisins