Frétt

Innköllun á þurrkaðri myntu (krydd)

Pottagaldrar hafa í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað þurrkaða myntu (krydd) vegna óleyfilegs varnarefnis (Chlorpyrifos).

Upplýsingar um vöruna

Vörumerki: Pottagaldrar

Vöruheiti: Mynta

Framleiðandi: Pottagaldrar

Innflytjandi: Pottagaldrar

Framleiðsluland: Holland

Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 20.02.2026, 09.04.2026, 21.05.2026.

Geymsluskilyrði: Myrkum og þurrum stað.

Dreifing: Hagkaup (Aðföng)

Fréttatilkynning frá Pottagöldrum