Innköllun á Hot Madras Curry powder 100gr.
Lagsmaður/fiska.is hefur innkallað Hot Madras Curry powder 100g, með best fyrir dagsetninguna 30-6-2023, Salmonella hefur mælst í kryddinu.
Fyrirtækið Lagsmaður/fiska.is hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) innkallað vöruna Hot MAdras Curry Powder 100gr frá fyrirtækinu TRS, þar sem Salmonella hefur fundist í kryddinu.
Innköllunin á einungis við vöruna með best fyrir dagsetninguna 30.6.2023
Vörumerki: TRS
Vöruheiti: TRS Hot Madras Curry 100gr
Innflytjandi: Lagsmaður ehf / Fiska.is
Framleiðsluland: Indland
Dreifing: Verslun fiska.is Nýbýlavegi 6,200 Kópavogi.
Lagsmaður ehf/fiska.is biður þá viðskiptavini sem enn eiga vöruna að farga henni eða skila henni gegn endurgreiðslu í verslun sína á Nýbýlavegi 6, Kópavogi. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 6914848 eða gengum tölvupóst fiska@fiska.is
![](https://images.prismic.io/heilbrigdiseftirlitid/2bb02761-0e1a-409f-a54a-76ac3ada75c9_Mynd.jpg?auto=compress,format)