Innköllun á Smjördeigskökum - Estrella de Hojaldre vegna óleyfilegs tungumáls.
Costco hefur innkallað Estrella de Hojaldre smjördeigskökur frá Productos Jesús, S.L í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Seltjarnarnes og Mosfellsbæjar (HEF) vegna óleyfilegs tungumáls. Einungis Spænska kemur fram á umbúðunum
Upplýsingar um vöruna sem innköllunin einskorðast við
Vörumerki: Dulcinove Pastelería
Vöruheiti: Puff Pastry Stars
Framleiðandi: Productos Jesus S.L.
Innflytjandi: Costco Ísland
Framleiðsluland: Spánn
Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Júní 11 2024, lota 011-624
Geymsluskilyrði: Geymist á þurrum stað við stofuhita.
Dreifing: Costco Ísland
Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna í Costco er bent á að skila henni í verslunina gegn fullri endurgreiðslu. Viðskiptavinir sem verða mögulega fyrir óþægindum vegna þessa eru beðnir innilega afsökunar
