Frétt

Innköllun á Wasabi Peas frá Golden Turtle

Varan gæti innihaldið Jarðhnetur í staðinn fyrir baunir

Fyrirtækið Lagsmaður/fiska.is hefur innkallað vöruna Wasabi Peas frá Golden Turtle í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Seltjarnarnes og Mosfellsbæjar (HEF) þar sem að varan gæti innihaldið Jarðhnetur í stað bauna.

Upplýsingar um vöruna sem innköllun einskorðast við

• Vörumerki: Golden turtle

• Vöruheiti: Wasabi peas

• Best fyrir: 24.10.2024

• Nettómagn: 140 g

• Geymsluskilyrði: Þurrvara

• Framleiðandi: Heuschen&Shrouff B.V. 6370 KE Laandgraaf Holland

• Framleiðsluland: Kína

• Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Fiska.is Nýbýlavegi 6 200 Kópavogur

Fréttatilkynning fyrirtækisins